Leita á síðunni:

 

Fær þakið þitt að anda?

- 07/12/2007
Þaksperrur eða uppsóp?
Þaksperrur eða uppsóp?
« 1 af 2 »
Menn geta lent í ýmsu og á dögunum tóku Vestfirskir að sér, einu sinni sem oftar, að skipta um þak á húsi. Flest vitum við hvernig þaksperrur líta út en á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig ónóg öndun getur farið með þaksperrur á aðeins 30 árum.

Framkvæmdir við nýbyggingu grunnskólans ganga vel

- 07/12/2007
Framhlið nýbyggingar grunnskólans
Framhlið nýbyggingar grunnskólans
« 1 af 5 »

Unnið er að því þessa dagana að koma fyrir gluggum og glerja. Þegar því er lokið er skólinn orðinn alveg lokaður og því ekki lengur auðvelt fyrir óprúttna að komast inn. Þess má til gamans geta að það fara 275 m2 af gleri í nýbyggingu skólans.

Brú yfir Mjóafjörð

- 20/11/2007
Fyrirhuguð brúarstæði
Fyrirhuguð brúarstæði
« 1 af 4 »

Hafin er vinna við þriðju og síðustu brúna inni í Ísafjarðardjúpi. Brúin yfir Mjóafjörð er jafnframt sú lengsta af brúnum þremur eða um 127,7 metra löng og því ríflega helmingi stærri en brúin yfir Reykjafjörð. Unnið er að því að fleyga berg og jafna undir landstöpla.

Að sögn Sveins Inga Guðbjörnssonar er búið að flytja aðstöðuna úr Reykjafirði, skúra, tæki og efni, yfir í Mjóafjörð og því ekkert að vanbúnaði að hefjast handa við stöplana um leið og jarðvinnu lýkur svo framarlega sem ekki verði að gera hlé á verkinu vegna veðurs.

Skemmdarvargar í nýbyggingu Grunnskólans

- 09/11/2007
Hlynur, Nonni og Garðar
Hlynur, Nonni og Garðar
« 1 af 2 »

Í gær voru framin skemmdarverk í nýbyggingu Grunnskólans á Ísafirði og er það ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist. Að sögn Garðars Sigurgeirssonar, verkstjóra hjá Vestfirskum Verktökum, farið var inn í bygginguna seinni partinn í gær og perur brotnar og plast rifið. Svipuð atvik hafa átt sér stað um þrisvar til fjórum sinnum og fyrir um það bil þremur vikum síðan var tjónið það mikið að lögreglan var kölluð til og skýrsla gefin um málið. Þá voru dýrar gasperur brotnar og tjónið nam um 100 þúsund krónum.


„Það er erfitt að verja þetta því við erum með plast í öllum gluggum og því auðvelt fyrir óprúttna að komast inn. Eftir 2 vikur koma gluggarnir og þá hættir þetta líklega. Hér er nú engu spennandi að stela, þannig að þetta eru hreinlega bara skemmdarverk. Það er enginn á vakt að staðaldri en við erum að einhverju leyti tryggðir fyrir svona.

Mig grunar að þetta séu krakkar, en þetta er ákaflega hvimleitt því það þarf oft ekki nema tvo til að skemma fyrir hinum, þau hafa að öðru leyti verið til fyrirmyndar,“ segir Garðar.

Tekið af bb.is