Háþrýstiþvottur
Fyrir endurmálun húseignaEin mikilvægasta forsenda fyrir endingargóðri utanhúsmálun er vönduð undirvinna. Til að ná hámarksendingu þarf fyrst og fremst að fjarlægja gamla málningu, sem fljótt á litið virðist föst til frambúðar.
En oft reynist flagð undir fögru skinni. Þannig málning getur haft aðeins 10-20% viðloðun. Ef málað er yfir slíka málningu getur nýja málningin farið að flagna af aðeins 1-3 árum eftir að málað var. Háþrýstiþvotturinn leysir húseigendur undan slíkum vandræðum því með honum margfaldast ending verksins.