Leita á síðunni:

 

Vverk Open

- 08/06/2009
Menn klárir í slaginn
Menn klárir í slaginn
« 1 af 7 »
Fyrsta golfmót sumarsins var haldið á föstudaginn var. Spilaðar voru 9 holur á æfingavellinum í Tungudal. Sigurður Fannar Grétarsson bar sigur úr bítum þrátt fyrir að vera með tvær bjórkippur í forgjöf og hlaut stórglæsilegan bikar í boði Wurth að launum. Það sýndi sig í þessu móti að starfsmenn fyrirtækisins spanna mikla breidd hvað varðar færni í að sveifla golfkylfu, hitta boltann og halda honum inni á "greeninu". En Siggi Fann tók að sér að kenna algjörum nýgræðingum fyrstu tökin við mikinn fögnuð áhorfenda.