Leita á síðunni:

 

VestVerk mótaröðin í pílukasti

- 25/02/2009
Maron Pétursson afhendir Pétri Magg og Oddi Bjarna sigurverðlaun 2007
Maron Pétursson afhendir Pétri Magg og Oddi Bjarna sigurverðlaun 2007

Næst komandi föstudag verður haldið fyrsta mótið af fjórum í hinni árlegu VestVerk mótaröð í pílukasti þar sem starfsmenn Vestfirskra Verktaka munu spreyta sig í pílukasti. Búist er við góðri þátttöku hér eftir sem hingað til enda til mikils að vinna. Wurth á Íslandi hefur verið einn helsti (eini) styrktaraðili mótsins til þessa og mun ekki láta sitt eftir liggja að þessu sinni heldur og lofar veglegum sigurverðlaunum auk skammarverðlauna.