Leita á síðunni:

 

Björn Jónsson lætur af störfum

- 07/03/2008
Garðar þakkar Birni gott samstarf
Garðar þakkar Birni gott samstarf
« 1 af 3 »
Í dag föstudaginn 7. mars 2008 var Björn Jónsson kvaddur með virktum á kaffistofu Vestfirskra í nýja Grunnskólanum. Björn verður 65 ára á mánudaginn og hefur ákveðið af því tilefni að láta af störfum. Um leið og Garðar Sigurgeirsson þakkaði Birni, farsælt og ánægjulegt 22 ára samstarf sem hann líkti við gott hjónaband, færði hann Birni blóm og gjafakort í kveðjuskyni ásamt langþráðum starfslokasamningi. Í samningnum segir að einu sinni í mánuði sé Birni heimilt að mæta á skrifstofu Vestfirskra Verktaka og þiggja þar "blautan koss" af vörum skrifstofudömunnar og hressingu úr möppunni góðu að honum loknum og að samningurinn gildi á meðan Björn hafi heilsu og getu til að innheimta.