Leita á síðunni:

 

Wurth og Vestfirskir undirrita samstarfssamning

- 14/05/2007
Haraldur og Hermann handsala nýgerða samning
Haraldur og Hermann handsala nýgerða samning

Allt frá stofnun Vestfirskra verktaka hefur fyrirtækið átt mikið og gott samstarf við Wurth á Íslandi og hafa viðskiptin aukist ár frá ári, enda hafa þeir Maron Pétursson tengiliður  og Róbert H. Halldórsson svæðissölustjóri veitt Vestfirskum alveg einstaklega góða og lipra þjónustu.

Í dag var undirritaður formlegur samstarfssamningur milli Vestfirskra og Wurth.  Samningurinn var undirritaður af þeim Haraldi Leifssyni, forstjóra Wurth á Íslandi og Hermanni Þorsteinssyni fyrir hönd Vestfirskra verktaka.